Hef horft aðeins of mikið á Little Britain undanfarið, mig langar ofsalega til að gera grín að fitubollum.
Ekki það að ég hafi mikið á móti þeim þannig, þær eru bara svo fyndnar í laginu!
Annars fór ég í skoðun og kom í ljós að ég er hraustari en andskotinn á sterum, ekkert að mér þrátt fyrir aldur og fyrri störf. Jú kannski frekar hátt hjá mér kólestrólið og bað læknirinn mig um að borða minna ruslfæði. En ég borða EKKI ruslfæði, aldrei!! Þetta fannst mér soldið súrt og hef því ákveðið að horfa á hvað þeir eru að bralla í mötuneytinu. Þeir ætla greinilega að eitra fyrir mér eins og honum Gondronn, bróður mínum, um árið.
Hins vegar hef ég verið duglegur í "ræktinni" og fer amk 3 sinnum í viku niður í kjallara að sprikla. Sérstaklega þegar það er lítið að gera í vinnunni, annars verður maður geðveikur já já já ding dong billabong!
Kominn í jólafrí og verð í 2 vikur með lömbunum og Graziu. Þetta verður alveg brilliant og piparkökur eins og hver vill, teiknimyndir og sleðaferðir, yes sir!
Svo er líka frekar kallt hérna, rokkar á milli -10 og -20 sem er bara ágætt. Fullt af snjó líka!
Að lokum legg ég til að Norður Kórea verði lögð í rúst! Þetta er orðið fínt hjá þeim
"Suzy Creamcheese, What´s got into you?"
The Hemulen Who Loved Silence
Monday, December 20, 2010
Wednesday, November 03, 2010
Gimli og helvítis fíflin á póstinum!
hmmm nú man ég ekkert hvað ég var að bulla síðast...
Fór með Graziu til Skotlands í vikunni sem leið. Ég var skipaður í frí frá vinnu enda kominn með meira en mánuð í yfirtíma og signorinan plataði mig yfir hafið. Ekki kvartar maður yfir því: Beikon, pulsur og egg alla morgna, bjór og viskí eins og hver vill, höf og fjöll sem aðeins góðir kunna að meta. Vorum aðallega í Edinborg og skömmumst okkur ekkert fyrir það. Þarna er allt til alls og allir glaðir, kátir og kurteisir. Ég skil enn ekki afhverju það er búað á haggis, þetta er eins og svartpulsan hér í Tampere, bara allt í lagi, frekar ómerkilegt kannski. Frekar borðar maður góðan kepp af klakanum.
Næst fer ég til Glasgow að grafa upp Taggart, hans er alltaf saknað!
Aftur stal pósturinn frá mér. Ekki alveg í lagi með þetta lið finnst mér. Venjulega stela þeir bara dúlleríi handa börnunum en núna gengu þeir yfir strikið. Ég kvartaði líka hátt og klagaði í lögguna. Ekki það að það hjálpi mikið en mér leið aðeins betur. Er nú samt að hugsa um að ganga í skrokk á saklausu gamalmenni...bara svona til að hefna mín á einhverjum. Já eða að sitja fyrir póstútburðardýri og setja það í pott!!
Grímur var eitthvap þreyttur í dag og sofnaði ofaní hádegismatinn í skólanum. Kennarinn "var ekki alveg að fatta þetta" og gaf honum stjörnu fyrir þolinmæði :D Við hlóum hátt yfir þessu strákarnir áðan. Hnoðuðum deig í pizzu og átum eins og svín. nöf nöf
Ronja er á skólaballi og er staðráðin að kyssa Vesa (ekki Vasara). Hann er frekar feitlaginn en vinalegur til augnanna. Ég get ekkert gert!
Að lokum, nú byrjaði nýr íslendingur í vinnunni. Halldór eitthvað Guðmundsson (held ég). Hann var ráðinn svo ég væri ekki alltaf svona "stressaður" og okkur var lofað góðri vertíð fram að jólum. Nokia ákvað hins vegar að stokka aðeins upp í spilunum og mörg verkefnin (ef ekki öll) enduðu í ruslinu. Hann situr nú eins og illa gerður hlutur og bíður eftir því að komast aftur til Lapplands. Hann er í styttra lagi og með lítil glaðleg augu. Fúlskeggjaður leiðsögumaður sem segir sögur og er til í tuskið. Alltaf gaman að hitta annan furðufugl.
Ég ætla að kalla hann Gimli og taka hann með mér heim
Gondronn

Wednesday, October 20, 2010
Ekki hamstrar maður á meðan
Heyrðu, veistu hvað?
Heldurðu að harði diskurinn hafi ekki gefið sig með öllum gögnunum mínum!
Ég held ég hafi glatað öllu!
Þarna voru milljón myndir frá 1999 til dagsins í dag.Bíómyndir og önnur afþreying eins og simpsons complete. Meira en 800 plötur og um 200 hljóðbækur. Allt saman í ordnung og stafrófsröð og alles!
Uss uss suss!
Ojæja, maður byrjar bara uppá nýtt, ekki málið.
Knús!

Friday, October 15, 2010
Góða nótt!
"Góða nótt Grímur"
-Góða nótt.
"Ég elska þig"
-Ég elska þig líka
"Ég elska þig meira"
-Ég efast um það
...
-Góða nótt.
"Ég elska þig"
-Ég elska þig líka
"Ég elska þig meira"
-Ég efast um það
...
Monday, September 20, 2010
Með kál í eyrunum
Það er svo skemmtilegt að vera fölgrænmetisæta!
Maður prumpar eins og túba, verður svangur á 2 klst fresti og hefur ekki orku í eitt eða neitt. Og samt þarf maður að borða alls kyns ómeti eins og Calsíum og prótín-bætt tófú og hrís eða haframjólk. Allt frekar sovéskt ef þið spyrjið mig.
Tja, þetta er nú kannski ekki svo slæmt en virðist vera óþarfi samt.
Ekkert í fréttum, erum að leita að stærri íbúð ef svo skildi fara að maður þyrfti á stærri íbúð að halda. Fundum eina um daginn sem leit vel út á netinu en lyktaði frekar illa þegar á staðinn var komið. Svo kunni ég ekki við konu sem sýndi plássið. Maður er svo viðkvæmur!
Vinna, vinna, vinna...já og þeir eru að leita að fleiri íslendingum í vinnu. Ekki hægt að teigja mig mikið meira í bili skilst mér.
Allir sem skipta máli eru hressir við góða heilsu, andlega og líkamlega

Friday, September 10, 2010
Spam, spam, spam, spam!
Mig dreymdi að ísskápurinn væri fullur af osti og skinku.
Ég held að undirmeðvitund mín sé að reyna að segja mér eitthvað og fer ekkert dulið með það.
Í dag er sánudagur!

Tuesday, August 31, 2010
Veganismi - Bull og vitleysa eða hvað?
Á morgunn verð ég veganisti.
Engar dýra-afurðir, ekkert smjör, engin mjólk, ekkert beikon, ekki neitt.
Hitti einhverja fanatíkusa í giftingu sem ég mætti í um daginn. Við fengum þríréttaða máltíð, þeir fengu þrjú mismunandi grös. Þetta fannst okkur svo fyndið að við ákváðum að verða harðkjarna grænmetisætur í mánuð.
Hef verið að lesa um þetta fyrirbæri, svona til að undibúa mig aðeins og mér sýnist þetta vera hálfgerð vitleysa. Þetta er svona alfanatískt lífsviðhorf, björgum trjánum og hvölunum og eggjunum og öllu frá öllu. Það þarf að taka alls kyns aukaefni og vítamín og borða fimm sinnum meira en venjulega bara svo maður visni ekki ekki eins og gömul planta.
Þetta verður örugglega gaman.
Annars gengur þetta allt bara sinn vanagang. Grímur kominn í sundskóla á laugardagsmorgnum og er ég að hugsa um að senda Ronju í Taekwondo. Hún hefði örugglega gaman að svoleiðis sprikli.
Síðast lasagnað á leið í ofninn.
Knús á alla